Sífelldar nýjar uppgötvanir í ævintýralandi barnanna. Ég held að maður eigi nú bara eftir að sakna þess á vissan hátt að vera ekki ófrískur þegar að því kemur. Tilfinningin að það sé lítill einstaklingur með sinn eigin karakter og eiginleika að vaxa og dafna innra með mér er ótrúlega skrítin. Suma daga finnst mér eiginlega að mér hljóti að vera að dreyma og að bráðlega komist ég að því að kannski borði ég bara svona mikið og sé bara að tútna út af ofáti, hmmm..... samt dáldid skrítið að tútna mest út í miðjunni.... :p
Annars var okkur hjónakornunum boðið á tónleika um helgina. Skelltum við okkur á Björgin Halldórs, það var svaka stemmning. Tónlistin svoleiðis flæddi um allt og yfir alla, Bjöggi stóð fyrir sínu og gestasöngvararnir voru líka alveg magnaðir, vantaði bara Magna kallinn :p Veistu ég held að litla skvísan eigi nú bara eftir að fíla Bó Halldórs þegar hún kemur í heiminn, hún tjúttaði allaveganna og trallaði í maganum á mér yfir tónleikanna og það mætti halda að blaðran mín hafi verið notuð sem bongótromma hjá henni en það var bara áhugaverð upplifun. :)
mánudagur, september 25, 2006
þriðjudagur, september 12, 2006
Bumbumyndir
mánudagur, september 11, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




