þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Skírn 4. febrúar 2007
















Þá er loks búið að skíra litlu prinsessuna :)

Litla prinsessan okkar heitir Heiða Björg Ingvarsdóttir. Skvísan okkar var skírð eftir langömmu sinni (Heiðu), ömmu sinni (Auðbjörgu) og langalangömmu sinni (Auðbjörgu). Einnig á Henný Björg frænka hennar hluta af nafni hennar, þannig að margar á hún nöfnunar.

Hátíðin var haldin í Mosfellsbænum hjá mömmu og var sannarlega vegleg. Ég þakka enn og aftur fyrir alla hjálpina. Það var svaka gaman að hitta alla og þökkum við kærlega fyrir komuna og fyrir allar gjafirnar til litlu prinsessunnar. Við eigum greinilega marga góða að.