þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Skondin þessi veröld

Jæja, þá erum við næstum því búin að vera tvo mánuði að heiman, með stuttum stoppum heima við. Þetta verður gjörsamlega ný íbúð þegar við komumst alfarið heim.

Það byrjaði með smá leka og "myglu" inná baðherbergi sem þýddi að við þurftum að rífa allt þar niður, þrífa og setja nýtt upp, flísalagt hólf í gólf o.s.frv.

Svo kemur stór leki og þá þurftum við að rífa upp öll gólfefni, henda nokkrum húsgögnum og mála alla íbúðina.

Já lífið er skondið. Á sama tíma er Heiða Björg byrjuð hjá nýrri dagmömmu og ég í nýrri vinnu. Allt að gerast og Heiða Björg skilur ekkkert í þessu flandri á okkur.

Annars er hún liggur við á góðri leið með að byrja að labba, hún hífir sig upp hvar sem hún getur og reynir eftir mesta megni að labba meðfram húsgögnunum, svo öskrar hún bara á hjálp ef það gengur eitthvað illa. Algjör skæruliði, það er enginn og ekkert óhult fyrir henni núna, þar á meðal kötturinn á heimilinu. Hann lítur á hana efasemdis augum í hvert skipti sem hún kemur of nálægt, já kötturinn er búin að læra af reynslunni að leyfa þessu litla dýri ekki að klappa sér þar sem að seinasta tilraun við slíkt endaði í ansi miklu hárlosi hjá greyið Blíðu. Hún var sannarlega ekki allskostar ánægð með það en Heiðu Björg fannst það svakalega sniðugt. Hún er meira að segja farin að kalla eftir henni "tisa" "tisa".

Já það er sannarlega fjör í mosó, en það verður svo sem líka gaman að komast heim og fara að skreyta fyrir jólin. :)

sunnudagur, nóvember 11, 2007

KatastrofíURrr

Hmm, já, ekki eru allar fréttir góðar fréttir..... sérstaklega ekki þegar þær snerta mann sjálfan.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1302196

Í nótt vöknuðum við við það að síminn hringdi..... Ingvar svaraði og heyrði þá sagt:
"Sæll, Lögreglan í Reykjavík hér, ert þú Ingvar Sigurðsson"
glúp.....
Ingvar: "já það er ég"
Löggan: "Gæti verið að það leki hjá þér?"
Ingvar: "ha, neiiii" um leið og hann hoppar strax fram og lendir beint ofaní 1 og 1/2 tommu köldu vatni.
Í taugaáfalli hendist hann fram og finnur upptök lekans og nær að stöðva hann, en skaðinn var skeður vatn lá yfir alla íbúðina nemaaaa svefnherbergið sem við sváfum svo vært í.
Slökkviliðsmenn og lögreglan koma inn um hurðina og Ingvar stendur í gættinni á nærbuxunum einum fata og ég stend í köldu vatninu á náttfötunum með úfið hárið og hjartað niðrí buxunum.

Innan nokkurra sekúndna eru ryksugur komnar í gang út um alla íbúð og nágranninn mættur sem hringdi á löggunna, því að allt var á floti hjá honum líka. Fórum við niður á næstu hæð og sáum þá að geymslan okkar var líka full af vatni og asssk... mikið drasl orðið að meira drasli í geymslunni okkar.

Slökkviliðsmennirnir spyrja og spyrja okkur um hver sé tryggingaraðilinn okkar.

"Djöf..." hugsum við bæði. Vissi að það væri eitthvað sem við áttum eftir að redda. Þarna fór frestunarárráttan illa með okkur. Enginn innbústrygging fyrir okkur leigjendurna.... en sem BETUR FER var húseigandatrygging húsfélagsins búin að tryggja alla eigendur í blokkinni fyrir slíku vatnstjóni fyrir utan auðvitað innbúið.

Úff, ég veit ekki hvernig við hefðum farið annars að.

Eitt er víst að í gær held ég að einhver guðdómleg forsjón hafi verið að verki, því að í gær þá unnum við baki brotnu við að þrífa allt og ganga frá öllu eftir baðherbergis endurbæturnar, ef við hefðum ekki gert það þá hefðu ansi margir hlutir eyðilagst í vatnsflóðinu. Það var eins og einhver væri með písk á bakinu á okkur, það átti allt að klárast.

Annars skiljum við ekkert hvernig þetta gat gerst, þetta er okkur algjör ráðgáta.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Skarlatssótt, eyrnabólga og streptakokkar

Jæja, fyrsta deginum okkar í vinnu og hjá nýju dagmömmunni hefur verið frestað. Heiða Björg er komin með skarlatssótt og eyrnabólgu, hún er öll útí rauðum flekkjum og með streptakokka í hálsinum, nú er hún skiljanlega ansi lítil í sér greyið.

Nú er ég ansi feginn að lifa á nútímaöld þar sem að lyf fyrir þessu eru til því hér áður fyrr þá var þetta víst frekar hættulegur sjúkdómur. Já, það er um að gera að vera þakklátur fyrir þróunina í læknavísindum.

mánudagur, nóvember 05, 2007

Fyrsti dagurinn hjá okkur mæðgunum


Á morgun er fyrsti dagurinn í vinnunni hjá Glitni, á miðvikudaginn er fyrsti dagurinn hennar Heiðu Bjargar hjá nýju dagmömmunni.

Dagmamman sem hún var hjá er að fara flytja til Svíþjóðar þannig að við þurftum að hafa hraðann á og finna nýja. Fundum við tvær sem eru að vinna saman, þær virðast vera æði. Þær eru búnar að tileinka eitt herbergi sem leikherbergi þar sem að þær hafa málað á veggina tré, ský, fugla og fleira sniðugt. Alveg svakalega sætt, alveg eins og í leikskóla.

Vonandi á þetta eftir að ganga allt vel, cross your fingers for me, please.