þriðjudagur, mars 13, 2007

Ljósmyndafyrirsætan okkar

Helling af myndum eru komnar inná myndasíðuna okkar hér til hliðar. Það er svo gaman að taka myndir af litla álfinum okkar, um að gera að deila þeim með ykkur :)

sunnudagur, mars 11, 2007

fimmtudagur, mars 08, 2007

Lasarus í heimsókn

Fyrsta kvefið, úff sem betur fer sýnist mér það ekki verða alvarlegt.

Ég lá í nokkra daga en á meðan var litla dúlla hress og kát og heimtaði alveg sömu athygli og vanalega, varð pabbi því að vera heima einn daginn, því að mamma hafði bara ekki nóga orku fyrir litla orkuboltan sinn. Eftir nokkra daga byrjaði að leka aðeins úr nebbanum sem versnaði svo mikið einn morguninn. Hún var voða hissa á þessu og vissi ekki alveg hvað ætti að gera, hún varð alveg fokvond yfir því að ná ekki að öskra jafn hátt og vanalega en sem betur fer er kvefið að skána mikið, þannig að hún á í litlum vandræðum með að tjá sig þessi elska. :)

En nóg komið af slappleika og veseni, á morgun ætlum við að skella okkur í leikfimina okkar í Hreyfilandi. Við skelltum okkur í mæðrafimi saman en það er svaka stuð. Fyrst fæ ég að sprikla á meðan Heiða Björg situr og glápir á okkur gellurnar fljúga um salinn. Síðan fær hún að vera með og hjálpar mömmu í styrktaræfingunum og svo í lokin fær hún sína leikfimi. Þar fær hún að fljúga og veltast um á bolta, faðma sig, hjóla og fleira. Geggjað gaman hjá okkur.

Síðan á miðvikudögum klukkan 11:45 er frí brjóstaráðgjöf fyrir alla sem vilja og sitjum við því saman mæðurnar með krílin okkar og brjóstaráðgjafa og deilum reynslusögum og fáum hjálp frá ráðgjafa og frá hvort öðru. Mæli endilega með því, því að þessi brjóstagjöf er miklu flóknari en ég hefði nokkurn tíman trúað. Alltaf hélt ég að þetta væri ekkert mál en svo er víst ekki. Stína frænka sendi mér svo fyndin myndabrandara varðandi brjóstagjöfina að ég hreinlega varð að láta hann fylgja með ef bloggerin leyfir.

föstudagur, mars 02, 2007

Blogg eða bloggleysi

Bloggleysið hjá mér er algjörlega til skammar. Samviskubitið er sífellt að naga mig, alltaf ætlar maður að gera svo mikið og kemur sér svo aldrei í að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég fæ samviskubit yfir því hvað ég borða, yfir því að ég hreyfi mig ekki nóg, sé ekki nógu dugleg, eða hreinlega sé ekki nógu góð að ala upp litlu dísina mína. úff ef það er einhver sem stjórnar þá er það hún. Dálítið ironic, þar sem að bráðlega, vonandi, útskrifast ég sem viðskiptafræðingur í stjórnunarfræðum. Svo ræð ég ekki einu sinni við 3 mánaða dóttur mína. Lífið er svo sannarlega undarlegt og sjálfsálitið hjá mér greinilega eitthvað takmarkað í augnablikinu...

Heiða Björg dafnar annars bara vel, við hljótum að vera gera eitthvað rétt :p Hún hefur þyngst úr 2940g í 4520g á ellefu vikum og stækkað um næstum 10 cm. Brosir alveg helling og ekki er langt í það að hún fari að skríkja af gleði, hún virðist allaveganna vera að prufa sig áfram í því. Sjónvarpið er dálítið spennandi núna og vill hún helst horfa á eitthvað sem er á hreyfingu eða vera sjálf á hreyfingu..... sem þýðir að við fáum sífellt nóg að gera við að halda henni ánægðri. Þegar hún tekur sín öskurköst þá finnst henni ekkert skemmtilegra en að vera sveiflað í allar áttir eða láta pabba sinn taka fjöldamargar hnébeygjur með hana í fanginu. Hún er alveg hörku einkaþjálfi þessi elska.

Jæja heyrumst betur síðar, reyni að skella inn fleiri myndum á myndasíðuna hér til hliðar á næstu dögum. Knús og kossar öllsömul :)